fimmtudagur, febrúar 02, 2006

Norðmenn eru officially ekki vinir mínir lengur!!!! :(
-
allavegana ekki í augnablikinu! :p

þriðjudagur, janúar 31, 2006

Ernu myndir úr afmælinu mínu! algjör snilld! :)

--en það er greinilega e-ð að tungunni minni, eða hún er allavegana e-ð asnaleg! :s

mánudagur, janúar 30, 2006

getting older every day...

J
á þá er ég barasta orðin 23... ekki lítið það!!! Bara 2 ár í 25 ára afmælið... úff... en þá verður líka afsökun til að halda STÓRT afmæli sem sem er alltaf gaman! ;)

Ég skemmti mér rosalega vel á laugardaginn og vil þakka öllum kærlega fyrir mig ! :) ég verð svo full þar sem eftir er af vikunni þar sem ég fékk þó nokkrar freyðivínsflöskur og vínflöskur af alls kyns tagi í gjöf!
Svo verð ég líka algjört beib því ég fékk andlitsbað og dúllerí frá stelpunum og svo líka krem og meira fínerí!
Ekki má gleyma dagtalinu sem strákarnir gáfu mér, myndir af þeim(ekki dónó ;) ) algjör snilld!
Allt algjör draumur í dós!
takk :)

rúna og erna voru með myndavélar og ég tók smá myndavéla flipp með ernu myndvél... :
1 mynd af gesti 2 af mér 1 af gesti 2 af mér :p

ernu koma inn soon...

jæja bless í bili...

miðvikudagur, janúar 25, 2006

Snilldar helgi á ak!

Ég
fór loksins norður um helgina... hafði ekkert farið síðan ég kom heim eftir próflokin í vor...

Unnur og Edda komu með mér og svo var fullt af fólki úr HR, Bifröst og svo Kennó... og hvað var hrillilega gaman!!!
Þetta var snilldin ein... ég og Sirrí dunduðum okkur á daginn og svo var crazy djamming á kvöldin!

Föstudagurinn: Vísindaferð, fylgdist jafn vel með og í tímum... s.s. ekkert með!
Partí !!!!!!! og það VAR svo gaman!!!! þar var frír bjór flæðandi !!
Amor- og það var búið að breyta honum til hins BETRA ! heví gaman þar líka! hélt reyndar að ég væri komin inn á stripp stað á tímabili en svo var ekki ;)
Náði því í sameiningu við Magga að stúta nefinu mínu, vorum sko að dansa.... :p en fór allt vel nebbinn beinn og allt í góðu :)
Tikk takk- pizza

Laugardagurinn:
sprell milli skólanna... HR vann HA! wúhú!
pizza og pottur heima hjá Unni
Partí hjá Sirrí og Tóta! ógeðsdrykkur og skemmtilegheit! - snilld! :)
Á móti sól á Sjallanum! :D mikið dansað, fullt af skotum tekin,
Tikk takk- búkollubátur!!! :) - gerist ekki betra!
-- EVA snillingur kom beint norður og á djammið eftir að hafa lent í keflavík kl. 22.00 um kvöldið .. hún var mætt kl. 3.00 á ballið og ætlaði sko í eftirpartí... en það urðu einhverjar aðrar freystingar fyrir valinu :p

Sunnudagurinn: Bakaríið við Brúnna
með akureyringunum okkar sem voru á staðnum! Ingunni, Evu og Jónínu! og bakaríið stóð fyrir sínu eins og alltaf! :)

SVo var það rútan heim... (ákvað að beila á fluginu því það var ófært)...
Við fórum út af veginum þegar við vorum bara rétt komin út fyrir Ak... en það var very smooth og enginn slasaðist!
--Komum svo heim um 12 eftir 10 tíma í rútu... en þetta var ekki svo lengi að líða... Maggi bekkjarbróðir minn hélt upp fjörinu með sögum og vá ég hef ekki hleygið svona mikið lengi!

--Fyrir utan Ak-stelpurnar, Sirrí, Saló, Hjöddu! voru fullt af fólki úr bekknum mínum í HR- rosa gaman að hafa þau þarna ! Hitti ég fullt af fólki óvænt! sem er snilldin ein! Maggi, Kári, Gummi og Brynjar fyrrverandi Verslingar voru þarna! :) Sandra beibí og svo Geir vinnufélaga! og pottþétt fleiri... en af völdum staupa man ég kannski eftir að hafa hitt þau... ;)

Svo má ekki gleyma að það var alveg slatti af sætum strákum þarna! en eins og Edda benti pent á þegar Unnur var að segja hvað allir væru orðnir mikið sætari... Unnur þú varst full! ;)

FERÐIN var s.s. SNILLD í heild sinni!!!

vona að næsta helgi verði eins skemmtileg! :)

fimmtudagur, janúar 05, 2006



Dansi dans um helgina

-S
aumó með skinkunum í kvöld og ég þar verður pakkaleikur! jibbí :) síðasti jólapakkinn og einn af fáum sem ég veit ekki hvað er... vúhú !

-Jólaboð hjá Heiðari á morgun 13' anum sem mér var EKKI boðið í en búist er við að ég mæti :D Fórum í fyrra englandshópurinn og það var rosa gaman og góður endir á góðum jólum!!! alltaf svo gaman að hittast hópurinn! og svo er frekar mikil snilld að fjölskyldan hans er með fullt af flugeldum lalalala... familían mín nefnilega sprengir ekki mikið upp... ég fór í ár og það var keypt meira en vanalega en samt ekki nóg :p
svo var smá brenna í garðinum hjá honum, minnir reyndar að hún hafi ekki verið skipulögð fyrir fram ;)

-Svo er það stelpudjamm á laugardaginn! ekkert þema bara skyldudrykkja og svo skylda að dansa hrillilega mikið í bænum :D allt of langt síðan ég dansaði af viti!

Áramótin voru frábær og vil ég þakka Önnu Möggu og Oddrúnu fyrir partíin! :) skemmti mér rosa vel, hefði bara viljað hafa áramótin lengri svo ég hefði getað vera lengur á öllum stöðum ;)

blessó...

miðvikudagur, desember 21, 2005

Komin heim at last

Já þá er ég loksins komin heim frá Spáni... ekki að það hafi verið leiðinlegt, það var æði!!
Ég var aðeins lengur en ég ætlaði mér... 11 dagar urðu að nokkrum mánuðum ;)
En ég meina Spánn er líka uppáhalds landið mitt...

En annars náði ég mér í þennan líka rosa lit úti... ekki skrítið kannski eftir allan þennan tíma!
ég myndi ekki vilja vera þið núna, allavegana ekki nálægt mér... svo heví góður litur á mér :)

Það er nú ekkert mikið að frétta annars bara djamm, djamm og djamm og svo nottla sólin ! má nú ekki gleyma henni!

En fyrst ég er nú komin heim ætla ég að djamma í tilefni þess! já það er Háskólaball á Brodway! stuðið verður pottþétt þar í kvöld... allavegana eftir kl. 1 því þá lokar allt í bænum ;)

Jóin svo bara á eftir smá... ekki leiðinlegt það!

Óska öllum GLEÐILEGRA JÓLA og vona að þið hafið það gott yfir hátíðarnar! :)

já svo bara allir að mæta í kvöld á Brodway, þar verður stuðið og ég. líka því það er svo rosalega langt síðan ég hef hitt ykkur öll...

miðvikudagur, september 07, 2005

Spain here i come!!! :)


vá hvað það verður gaman! er reyndar komin með reglur frá Rúnu:
bannað að brúnkast og fá freknur...
við Erna eigum s.s. bara að djamma út í eitt og sofa á daginn...
sjáum hvernig fer...

Adios amigos!